Jenile á Íslandi
152.335 kr
Von á barni í döff fjölskylduna?
Lítið barn á heimilinu?
Foreldri sem heyrir illa barnsgrátur?
Amma og afi eða bara barnfóstran heyra illa í barninu gráta?
Barnið vill að einhver komi til sín ?
Þetta er heildstæður pakki sem gengur út á að sinna þörfum barnsins. Aðallega að heyra grát þess eða þegar það sjálft vill láta einhvern kíkja á sig.
Nýtist með: Blikkljóskubb, blikkljósinnstungu, snertititrara, vasasnertititrara (öll tækin í kassanum geta líka nýst með reykskynjara – reykskynjara þarf að kaupa sér)
Eftirlitsmyndavélinni okkar (þarf að kaupa sér)
Tækin þurfa hleðslu á 2-3 vikna fresti. Láta vita af sér þegar lítil hleðsla er eftir (gul ljós)
Einhverjar spurningar? info@jenile.is
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands útvegar hjálpartæki fyrir heyrnarskerta, heyrnarlausa og þá sem eru með heyrnar- og talmein samkvæmt lögum nr. 42/2007, um Heyrnar- og talmeinastöð. Geta einstaklingar snúið sér til HTÍ vegna kaupa á hjálparbúnaði s.s. Jenile. Um styrki til þeirra sem eru með heyrnarmein fer samkvæmt reglugerð nr. 1118/2006, um greiðsluþátttöku ríkisins í hjálpartækjum sem Heyrnar- og talmeinastöð útvegar.
Þeir sem eiga rétt á niðurgreiðslu eða vilja kanna rétt sinn er bent á að hafa samband við starfsfólk Heyrnar og talmeinastöð Íslands. Sendið tölvupóst á: hti@hti.is og öllum pósti er viðkemur þessum hjálpartækjum verður komið áfram.