Þetta er lítil dyrabjalla. Henni er komið fyrir þar sem dyrabjöllur eiga að vera, við hurðina. Hún er vatnsheld. Dyrabjallan er einstök og samstillanleg við öll viðvörunartækin.
Deila á:
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands útvegar hjálpartæki fyrir heyrnarskerta, heyrnarlausa og þá sem eru með heyrnar- og talmein samkvæmt lögum nr. 42/2007, um Heyrnar- og talmeinastöð. Geta einstaklingar snúið sér til HTÍ vegna kaupa á hjálparbúnaði s.s. Jenile. Um styrki til þeirra sem eru með heyrnarmein fer samkvæmt reglugerð nr. 1118/2006, um greiðsluþátttöku ríkisins í hjálpartækjum sem Heyrnar- og talmeinastöð útvegar.
Þeir sem eiga rétt á niðurgreiðslu eða vilja kanna rétt sinn er bent á að hafa samband við starfsfólk Heyrnar og talmeinastöð Íslands. Sendið tölvupóst á: hti@hti.is